Selatalningin mikla var haldin á vegum Selasetur Íslands þann 22. júlí s.l. Talningin hefur farið fram árlega síðan árið 2007 og var þetta því sjötta talningin. Markmið talningarinnar er að fylgjast með fjöldi og staðsetningu landsela í kringum Vatnsnes og Heggstaðanes, ásamt því að gefa almenningi tækifæri á að kynnast og taka þátt í rannsóknarstarfsemi Selaseturs Íslands.
Selir voru taldir á allri strandlengjunni á Vatnsnesi og Heggstaðanesi í Húnaþingi vestra, en það er samtals um 100 km. 40 manns tóku þátt í talningunni og fóru talningarmenn gangandi, ríðandi eða á báti. Talningin byggir algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða, en með þessu móti gefst færi á að kanna stórt svæði á mjög stuttum tíma.
Í ár sáust samtals 614 selir á svæðinu. Það eru mun færri selir en hafa sést undanfarin ár. Mikilvægt er að hafa í huga að þessar talningar eru aðeins vísbending um lágmarksfjölda þeirra sela sem dvelja á þessu svæði. Margir þættir hafa áhrif á fjölda sela sem liggja uppi í látrunum og veður er einn þeirra. Veðrið hefur undanfarin ár verið mjög gott, en í gær var þó nokkur úrkoma og fremur hvasst. Getur það verið ein skýring á því að færri selir lágu uppi nú í ár.
Athuga ber að tölurnar segja ekki til um ástand landsselsstofns í heild. Stofnstærðarmat á landsel hefur farið fram reglulega síðan árið 1980 og þá hefur verið talið um land allt úr flugvél. Niðurstöður þeirra talninga benda til þess að landselstofninn hafi staðið í stað síðan árið 2003 og sé tæplega 12 þúsund dýr.
Texti: www.selasetur.is