Ekkert opinbert helgihald verður í Siglufjarðarkirkju það sem eftir er af marsmánuði, þetta kemur fram í tilkynningu frá sr. Sigurði Ægissyni, sóknarpresti. Það sem fellur niður eru tvær messur sem fyrirhugaðar voru 15. og 29. mars næstkomandi, annars vegar ljósamessa og hins vegar dægurlagamessa, auk barnastarfsins, sem er þá hér með lokið þennan veturinn. Siglufjarðarkirkja er þar með fyrsta kirkjan á Íslandi sem fellur niður messur vegna COVID-19 veirunnar, svo vitað sé.

Ástæðan fyrir þessu er útbreiðsla COVID-19 veirunnar. Engir eru þó sýktir hér á Siglufirði svo vitað sé, en aldrei er of varlega farið þegar vágestur sem þessi er annars vegar. Þetta er eingöngu hugsað sem fyrirbyggjandi aðgerð, í ljósi aðstæðna. Staðan verður endurmetin um mánaðamótin mars/apríl.

Fyrir þau sem erindi kunna að eiga í aðrar athafnir í Siglufjarðarkirkju, s.s. skírnir, hjónavígslur og útfarir, verður handspritti komið fyrir í anddyri kirkjunnar. Jafnframt ber að forðast snertingar eins og hægt er; í tilviki útfarar sem verður núna á laugardag eru aðstandendur meðvitaðir um þetta.

Texti: Tilkynning frá facebooksíðu Siglufjarðarkirkju.

Siglufjarðarkirkja