Þann 14. apríl 2016 opnaði Deplar Farm dyr sínar og markaði þar með tímamót í íslenskri ferðaþjónustu. Þar var í fyrsta sinn boðið upp á gistingu og upplifun í hæsta gæðaflokki á stað sem er fjarri hefðbundnum ferðamannamiðstöðvum. Í stað miðbæjar Reykjavíkur varð afskekkt náttúra Fljóta í Skagafirði vettvangurinn.
Það krefst bæði kjarks og framsýni að ráðast í fjárfestingu af þessari stærðargráðu án þess að styðjast við innviði eða þjónustu í næsta nágrenni. Frá upphafi hefur starfsemin þurft að vera sjálfbær; byggja upp starfsmannahúsnæði, sinna snjómokstri og tryggja samgöngur við krefjandi aðstæður.
Hið fallega 13 herbergja hótel hefur frá fyrsta degi verið opið allt árið um kring, þrátt fyrir þær áskoranir sem íslenskt veðurfar og afskekkt staðsetning geta haft í för með sér. Þjónustan er mannaflafrek og í dag eru um 68 ársstörf tengd rekstrinum. Flestir starfsmenn búa í Fljótunum í húsnæði sem fyrirtækið hefur byggt upp, sem gerir Deplar Farm að einum stærsta vinnustað á svæðinu.
Með tímanum hefur staðurinn þróast úr því að vera hótel í að verða sjálfstæður áfangastaður.
Árangur Deplar Farm hefur einnig vakið athygli á alþjóðavísu. Hótelið hefur ítrekað verið valið á lista Condé Nast Traveler yfir bestu hótel heims, meðal annars á hinum virta Gold List árin 2019 og 2023. Þá hefur það skipað sér í fremstu röð í Reader’s Choice Awards og verið talið meðal bestu hótela bæði í Evrópu og á heimsvísu. Slíkar viðurkenningar undirstrika þá sérstöðu sem staðurinn hefur skapað sér á alþjóðlegum markaði.
Það sem einkennir Deplar Farm umfram mörg önnur hótel á Íslandi er fjölbreytt og sérsniðin afþreying fyrir gesti. Á vorin laðar Tröllaskaginn að sér skíðafólk sem sækir í fjöll og firnindi svæðisins, en yfir sumartímann gefst gestum kostur á að upplifa perlur Norðurlands. Þar má nefna heimsóknir í Drangey, flúðasiglingu niður Austari-Jökulsá, hvalaskoðun í Eyjafirði og veiði í Fljótá.
Uppbygging starfseminnar hefur jafnframt haft jákvæð áhrif á nærumhverfið. Á síðustu árum hefur verið ráðist í endurbætur á fasteignum á svæðinu, þar á meðal á Knappstöðum þar sem hin sögufræga Knappstaðarkirkja stendur. Þá hefur verið unnið metnaðarfullt starf í Haganesvík þar sem gamalt hús Samvinnufélags Fljótamanna hefur verið endurgert og hýsir nú upptökustúdíó. Þar gefst erlendum listamönnum tækifæri til að dvelja og skapa í einstöku umhverfi Fljóta.
Texti: Haukur B. Sigmarsson, birt með leyfi.