Tólf stúdentar brautskráðust frá Menntaskólanum á Tröllaskaga í gær, þar af voru ellefu fjarnemar við skólann. Þrír útskrifuðust af félags- og hugvísindabraut, einn af útivistarsviði íþróttabrautar, tveir af listabraut, einn af kjörnámsbraut og fimm luku viðbót við starfsnám til stúdentsprófs. Frá þessu var greint á vef mtr.is.

Brynjar Bjarkason flutti ávarp nýstúdents. Hann þakkaði skólanum fyrir tækifæri til að klára námið á eigin forsendum. Hann hefði byrjað í framhaldsskóla fyrir tíu árum en loksins væri náminu lokið með stúdentsprófi eftir nokkur stopp og pásur. Hann sagðist reikna með að margir væru í sömu sporum. En Menntaskólinn á Tröllaskaga hefði veitt mjög sérstakt tækifæri til að ljúka náminu án þess að segja upp vinnu, flytja að heiman eða taka kvíðvænleg lokapróf.

Aðstoðarskólameistari MTR greindi frá því að um 340 nemendur hefðu stundað nám við skólann á önninni. Þar af hefðu 248 verið skráðir í fjarnám. Fjölmennasta brautin var félags- og hugvísindabraut með 138 nemendur, 55 voru á náttúruvísindabraut, 52 á listabraut, 43 á íþróttabraut, 14 á kjörnámsbraut, 7 á starfsbraut og 16 á grunnmenntabraut, þar af 10 grunnskólanemar.

Við útskriftina önnuðust Hörður Ingi Kristjánsson, Júlíus og Tryggvi Þorvaldssynir og Mikael Sigurðsson tónlistarflutning með aðstoð Guðmanns Sveinssonar kennara síns á tónlistarbrautinni.

Mynd: Bjarni Grétar Magnússon / Héðinsfjörður.is