80 ára afmæli Skeiðsfossvirkjunar verður fagnað á Síldarævintýrinu á Siglufirði um verslunarmannahelgina, sunnudaginn 3. ágúst.  Orkusalan býður til skemmtilegrar samverustundar við Skeiðsfossvirkjun á sunnudeginum um verslunarmannahelgina. Afmælið fer fram í fallegu og skógi vöxnu umhverfi við stöðvarhúsið og virkjunina.  Rúta fer frá Ráðhúsinu á Siglufirði sunnudaginn 3. ágúst kl. 10:30 – skráning hér.
Skeiðsfossvirkjun, knúin af krafti Fljótaár, var lykilstoð í þeirri stórkostlegu uppbyggingu sem fylgdi Síldarævintýrinu á Siglufirði. Hún tryggði rafmagn til verksmiðja, heimila og fyrirtækja og lagði grunn að því samfélagi sem þá byggðist upp.  Mætum sem flest í tilefni þessa merka áfanga í sögu raforkumála á Norðurlandi.

 Dagskrá dagsins – stuð, saga og samvera:

 Ókeypis rútuferð frá Ráðhústorginu á Siglufirði kl. 10:30
 Veitingar á svæðinu frá kl 11:00, grillaðar pylsur, drykkir, afmæliskaka og kaffi
 Hoppukastali, Kubb og Pétanque fyrir börnin
 Sýning á stöðvarhúsi og ganga að stíflunni
 Spjall við stöðvarstjóra og fræðsla um sögu virkjunarinnar og starfsemi hennar í dag