Það voru 53 lið sem spiluðu 136 blakleiki um helgina í Fjallabyggð. Mótinu lauk síðdegis í dag en síðustu leikir hófust 17:20 en þeir fyrstu kl. 08:00 í morgun. Alls var spilaði í sex kvennadeildum og tveimur karladeildum.  Blakfélag Fjallabyggðar var með sex lið í mótinu, og liðið BF-1 náði 3. sæti í 1. deild kvenna, BF-2 náði 2. sæti í 3. deild kvenna og BF-kjúllar sigruðu í 6. deild kvenna. Í fyrstu deild karla sigraði lið KA-Ö, í 2. deild karla sigraði lið Leifurs. Í 1. deild kvenna sigraði Völsungur og í 2. deild kvenna sigraði Völsungur B. Öll úrslit og lokastöðu má sjá á vef blak.is.