Dagana 22. – 26. maí verður árleg vorhreinsun í Fjallabyggð. Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að hreinsa til á lóðum sínum og nærumhverfi í sameiginlegu átaki dagana 22. – 26. maí.
Fyrirtæki og stofnanir eru sérstaklega hvött til að taka þátt í átakinu. Starfsmenn bæjarins verða á ferðinni mánudaginn 27. maí og þriðjudaginn 28. maí til að fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið við lóðarmörk.
Athygli skal vakin á því að húseigendum ber að fara með lausafjármuni, spilliefni, timbur, málma og brotajárn á gámasvæði.
Frá þessu er greint á vef Fjallabyggðar.