Vinnuskóli Skagafjarðar hefur störf þriðjudaginn 10. júní. Líkt og í fyrra verður bækistöð vinnuskólans í vallarhúsinu á íþróttavellinum á Sauðárkróki. Starfsmenn vinnuskóla í ár verða þeir Atli Steinn Stefánsson og Atli Dagur Stefánsson. Auk þeirra verða starfsmenn íþróttavallar börnunum innan handar.
Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Gröndal, leiðtogi frístunda- og íþróttamála, á netfangið valdi@skagafjordur.is
Umsækjendur munu fá tölvupóst með nánari upplýsingum um hvert þau eiga að mæta á fyrsta vinnudaginn, eigi síðar en miðvikudaginn 4. júní.
