Vinnuskóli Fjallabyggðar er fyrir ungmenni sem nýlokið hafa 8., 9. eða 10.bekk Grunnskóla Fjallabyggðar. Skólinn hefst mánudaginn 8. júní kl. 8.30 hjá öllum. Nemendur búsettir á Siglufirði mæta í Áhaldahús FJallabyggðar. Nemendur búsettir á Ólafsfirði mæta í aðstöðu Áhaldahúss (norðan við Skiltagerð).
Áætlaður lokadagur Vinnuskólans er 31. júlí. Þó gefst ungmennum sem lokið hafa 10. bekk kostur á að vinna til 7. ágúst.
Vinnutími:
Ungmenni sem nýlokið hafa 8. bekk: Mætt er fyrir hádegi fimm daga í viku, frá kl.8:30 til kl.12. Einnig er hægt að haga vinnu þannig til ef einstaklingur vill frekar vinna frá 13:00 – 16:30 þá er það í boði líka.Daglegur vinnutími reiknast 3,5 klst. eða 17,5 tímar á viku.
Ungmenni sem nýlokið hafa 9. eða 10. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Unnið er 3,5 klst. fyrir hádegi á föstudögum. Samtals möguleiki á 35 klst. vinnu á viku.
Vinnuskólinn áskilur sér rétt til að takmarka frekar vinnutíma ef skráning fer fram úr áætlunum.
Dagskrá
Almenn störf og áherslur í Vinnuskóla eru garðyrkja, gróðursetning, hirðing á lóðum og opnum svæðum bæjarins. Einnig eru í boði nokkur aðstoðarstörf hjá íþróttafélögum við leikjanámskeið fyrir þau ungmenni sem eru að ljúka 9. eða 10. bekk. Hægt er að merkja við þessi aðstoðarstörf inn á skráningareyðublaðinu. Ofangreindir aðilar fá síðan listann og velja til sín af honum.
Athugið að vinnutími unglinga í aðstoðarstörfum hjá félögum er í einhverjum tilvikum aðlagaður að tímasetningu sumarnámskeiða sem sum hver geta verið fram í ágúst.
Smíðaskóli fyrir börn sem nýlokið hafa 1. – 7. bekk hefur verið rekin tvö undanfarinn ár og gengið vel á Siglufirði. Hann verður í boði í báðum byggðarkjörnum.
Laun
Allar tölur eru án orlofs:
- Unglingar sem nýlokið hafa 8. bekk 35% af lfl. 117 kr. 675,98 pr.klst. 3,5 klst. á dag mán-fös.
- Unglingar sem nýlokið hafa 9. bekk 40% af lfl. 117 kr. 772,55 pr.klst. 7 klst. á dag mán-fim 3,5 klst á fös.
- Unglingar sem nýlokið hafa 10. bekk 60% af lfl. 117 kr. 1.158,73 pr.klst. 6,0 klst. á dag mán-fim 3,5 klst á fös.