Síðastliðið sumar var lagður nýr vegur upp að Upsum í Dalvíkurbyggð en hann liggur í beinu framhaldi af Böggvisbraut í norður, yfir Brimnesána sem liggur í tveimur stokkum undir veginn. Framkvæmdum við veginn er ekki lokið en nú á dögunum var bætt úr öryggi vegfarenda þegar vegrið voru sett á veginn þar sem Brimnesáin liggur undir. Á komandi árum stendur svo til að leggja bundið slitlag á veginn.
Með þessum nýja vegi varð aðgengi að Upsakirkju mun betra en staðurinn er sögufrægur. Við Upsakirkju er að finna upplýsingaskilti með ýmsum fróðlegum upplýsingum um kirkjuna og sögu hennar. Vegurinn bætti einnig aðgengi að hundasvæðinu en norðan og ofan við Upsir er merkt svæði þar sem lausaganga hunda er leyfð.