Fyrir liggur að Vegagerðin hefur ákveðið að endurhanna leiðarkerfi landsbyggðarstrætó. Nokkrar breytingar eru á teikniborðinu en ákveðið hefur verið að leið 57 muni framvegis fara eina ferð á dag í stað tveggja eins og nú er.

Eins hefur hugmyndum um nýja akstursleið sem tengir Hvammstanga, Blönduós og Sauðárkrók ekki hlotið fjármögnun og því verður ekki unnið áfram með þá útfærslu eins og að var stefnt.

Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur mótmælt harðlega fyrirætluðum niðurskurði í almenningssamgöngum milli Akureyrar og Reykjavíkur og harmar að ekki hafi verið horft á hugmyndir íbúa Norðurlands vestra um almenningssamgöngur milli þéttbýlisstaða í landshlutanum.

Sveitarstjórn Skagafjarðar skorar á innviðaráðherra að taka málið til skoðunar með það í huga að íbúar Norðurlands vestra sitji við sama borð þegar kemur að almenningssamgöngum og aðrir landsmenn. Ekki síst þarf að horfa til þess að almenningssamgöngur eru sérstaklega mikilvægar fyrir eina framhaldsskólann á Norðurlandi vestra ásamt tómstunda- og íþróttastarfi.

Er þessi ákvörðun í hróplegu ósamræmi við 3. grein stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins þar sem segir að auka eigi fjárfestingar í samgöngum um land allt.