Fimmtudaginn 6. desember kl. 17:00 verður haldið útgáfuhóf í Gránu vegna nýrrar bókar Síldarminjasafnsins.
Lesnir verða valdir kaflar úr bókinni Siglufjörður og verður hún til sölu á staðnum, og kostar 9500 kr.
Bókin, Siglufjörður. Ljósmyndir / Photographs 1872-2018, er gefin út í tilefni 100 ára kaupstaðarafmælis og 200 ára verslunarafmælis Siglufjarðar – og er gjöf safnsins til samfélagsins.
Léttar veitingar verða í boði og eru allir velkomnir.
Á baksíðu bókarinnar segir:
Siglufjörður. Fáir bæir eiga jafn viðburðaríka sögu og Siglufjörður; hið ótrúlega ris staðarins sem byggðist á síldinni, einum helsta örlagavaldi Íslendinga á 20. öld. Lítið og afskekkt hákarlaþorp komst óvænt í alfaraleið erlendra fiskveiðiþjóða og varð að höfuðstað síldarinnar í Atlantshafi. En svo hvarf síldin – hvað gerðist þá í þessari litlu borg við ysta haf?
Hér er sagan rakin í 140 völdum ljósmyndum og stuttum textum á íslensku og ensku. Samtímis því að skoða meginþættina í sögu staðarins er skyggnst ofan í hið smáa og hversdagslega, athafnir hinna fullorðnu og leiki barnanna svo dæmi séu nefnd.
Þetta er bók sem allir þeir sem áhuga hafa á sögu Siglufjarðar, eða tengjast honum á einn eða annan hátt, ættu að eiga.
Höfundar bókarinnar eru starfsfólk Síldarminjasafns Íslands, Anita Elefsen safna- og sagnfræðingur, Steinunn M. Sveinsdóttir sagnfræðingur og Örlygur Kristfinnsson fyrrum safnstjóri.