Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í Skólaakstur á Sauðárkróki 2019-2022. Um er að ræða eina akstursleið sem ekin er skv. tímatöflu sem nánar er skilgreind í útboðsgögnum.
Helstu magntölur í útboði Skólaakstur á Sauðárkróki 2019-2022 eru:
Lengd leiðar: 7,3 km pr. ferð.
Farþegafjöldi: Allt að 80 farþegar.
Fjöldi ferða á dag: Sjá nánar í útboðsgögnum.
Fjöldi akstursdaga: Um 114 akstursdagar á hverju tímabili með frávikum.
Tímabil aksturs hvert skólaár: Frá 3. viku í október til og með 2. viku í apríl.
Útboðsgögn eru til afhendingar án endurgjalds í afgreiðslu Sveitarfélagsins Skagafjarðar við Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki, frá og með fimmtudeginum 13. júní nk.
Þangað ber að skila tilboðum í lokuðu umslagi í síðasta lagi fyrir kl. 13:30 fimmtudaginn 27. júní 2019.
Tilboð verða þá opnuð í ráðhúsi, Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Verklok eru áætluð vorið 2022.
Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.