Upplestrarhátíð Árskóla á Sauðárkróki fór fram í matsal skólans fimmtudaginn 13. mars síðastliðinn. Þar voru eftirfarandi nemendur úr 7. bekk skólans voru valdir til þátttöku í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Skagafirði.  10 börn voru valin áfram, þar af tveir varamenn. Nemendur 7. bekkjar Árskóla hafa síðustu vikur æft sig markvisst í upplestri texta, bæði í skólanum og heima, og nutu áhorfendur afraksturins.
Aðalmenn: 
Bryndís Dögg Helgadóttir
Dominic Þór Jónsson
Íris Ösp Elefsen
Hólmar Thor Jónsson
Patrekur Elí Barðdal Magnússon
Rúrik Helgason
Sigurbjörn Darri Pétursson
Svanborg Alma Ívarsdóttir
Varamenn: 
Björn Halldór Rögnvaldsson
Guðni Bent Helgason
Þessir 7. bekkingar munu halda áfram að æfa upplestur og keppa síðan fyrir hönd Árskóla á lokahátið upplestrarkeppninnar í Skagafirði sem fer fram þriðjudaginn 25. mars nk. kl. 17:00 í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Dómarar keppninnar í ár voru þau Eysteinn Ívar Guðbrandsson, Ragnheiður Matthíasdóttir og Ingunn Ásdís Sigurðardóttir.