Nú styttist í upphafsdaga haustannar hjá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Heimvistin opnar fyrir nýnema mánudaginn 21. ágúst næstkomandi og í framhaldinu verða nýnemadagar. Skólasetning verður miðvikudaginn 23. ágúst og hefst kennsla sama dag samkvæmt stundatöflu.
Dagskrá fyrstu daga haustannar 2023 hjá FNV:
21. ágúst kl. 17:00: Heimavist opnar fyrir nýnema
Heimavistin opnar fyrir nýnema (fæddir 2007 eða síðar) mánudaginn 21. ágúst klukkan 17:00 en fyrir eldri nemendur þriðjudaginn 22. ágúst kl. 17:00.
21. ágúst kl. 19:00: Fundur með foreldrum nýnema
Fundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn í Bóknámshúsi FNV mánudaginn 21. ágúst kl. 19:00. Foreldrar fá fundarboð með tölvupósti þegar nær dregur.
22. – 23. ágúst: Nýnemadagar
Nýnemadagar eru ætlaðir nýnemum sem koma beint úr grunnskóla. Þeir hefjast þriðjudaginn 22. ágúst í Bóknámshúsi FNV en nemendur á dreifnámsstöðvum mæta í dreifnámsstofur á Hólmavík, Hvammstanga og Blönduósi. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
22. ágúst: Opnað fyrir stundatöflur og óskir um töflubreytingar í INNU
Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU þriðjudaginn 22. ágúst og þá verður einnig hægt að óska eftir töflubreytingum. Töflubreytingar fara fram í INNU 22.-24. ágúst. Leiðbeiningar vegna töflubreytinga er að finna á https://www.fnv.is/is/namid/itarefni/toflubreytingar
23. ágúst kl. 8:00: Skólasetning
Skólasetning verður á sal Bóknámshúss FNV klukkan 8:00 miðvikudaginn 23. ágúst.