Nú líður að hinni árlegu ferð félagsmiðstöðvarinnar Neons í Fjallabyggð á Samfestinginn og Söngkeppni Samfés sem haldin er í Laugardalshöll í Reykjavík helgina 20.-22. mars. Ferðin er nýtt til allskonar hópeflis fyrir unglingana, eins og ferð í bíó, skemmtigarð og fleira.
Unglingar í Neon munu ganga í hús í Fjallabyggð og óska eftir stuðningi bæjarbúa til ferðarinnar dagana 11.-13. mars næstkomandi. Á móti vilja unglingarnir rétta íbúum í Fjallabyggð hjálparhönd og fyrirhuguð er Góðgerðarvika 4.-11. mars.
Í Góðgerðarviku gera unglingarnir í Neon góðverk og kemur ýmislegt til greina s.s. setja í poka og bera vörur úr búðunum, taka þátt í félagsstarfi eldri borgara, þvo glugga, týna rusl, fara út með hundinn o.s.frv.
Fyrirtæki sem þiggja góðverk eru hvött til að styrkja unglingana til ferðarinnar en það er þó alls ekki skilyrði.
Allur stuðningur vel þeginn.
Þau fyrirtæki eða einstaklingar sem vilja þiggja góðverk hafi samband við Karen Sif umsjónarmann Neons á netfangið karensifroberts@gmail.com sími 869-6866.