Fyrirhuguð er tiltekt á fjórum svæðum í Fjallabyggð með það að markmiði að fegra og bæta umhverfið. Þeir sem gera tilkall til einhverra af þeim hlutum sem á svæðunum eru skulu fjarlægja þá fyrir 31. maí nk. eða hafa samband við tæknideild Fjallabyggðar.
Svæðin eru þessi:
- Vesturtangi á Siglufirði
- Svæði vestan við Óskarsbryggju á Siglufirði
- Lóð númer 4 við Námuveg í Ólafsfirði
- Gámasvæði við smábátahöfn í Ólafsfirði