Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbargar fór fram á Siglufirði dagana 26. – 30. júní, fjörið hófst á miðvikudegi og stóð fram á sunnudag. Landsmótið er hápunkturinn í unglingastarfi félagsins og var þátttaka mótsins góð, voru þar saman komnir 300 unglingar og umsjónarmenn úr unglingadeildum víðsvegar af landinu. Skipulagning mótsins var í höndum Unglingadeildarinnar Smástráka með dyggri aðstoð frá björgunarsveitinni Strákar og slysavarnadeildinni Vörn. Unglingarnir settu sannarlega svip sinn á bæinn meðan á mótinu stóð og leystu fjölbreytt verkefni. Ljósmyndir frá Steingrími fylgja fréttinni.
Mótið hófst með því að öllum, bæði umsjónarmönnum og unglingum, var skipt upp í átta blandaða hópa sem störfuðu saman yfir mótið. Fyrstu tvo dagana fóru hóparnir á átta mismunandi stöðvar, rúma klukkustund á hverri stöð og leystu þar stórskemmtileg verkefni. Stöðvarnar, sem við köllum pósta voru fjölbreyttir og sem dæmi um pósta eru kassaklifur/sig, bátar, fyrsta hjálp, leitartækni, spottavinna, hópefli, landsþing unglinga og þetta árið bættist við sú nýung að unglingarnir fengu að kynnast drónum, bæði ofan sjávar og neðan.
Laugardagurinn hefur oft verið sagður skemmtilegasti dagurinn en þá eru björgunarleikar, Í björgunarleikunum þarf hópurinn að fara í gegnum bráðskemmtileg og krefjandi verkefni sem hafa það að aðalmarkmiði að hópurinn vinnur saman og hefur gaman af.
Kvölddagkráin var mjög skemmtileg, fyrsta kvöldið, fimmtudagskvöldið, var haldið risa sundlaugarpartý i Sundlauginni á Ólafsfirði og var það Dj Birgitta sem hélt uppi fjörinu.
Á föstudagskvöldið voru haldnir umsjónarmannaleikar en þar kepptu umsjónarmenn í skemmtilegum þrautum og unglingarnir sáu um að hvetja sinn umsjónarmann áfram. Lokakvöldið var síðan á laugardagskvöldið og þar var keppt í hinu alræmda reiptogi. Það hefur verið keppt í reiptogi á landsmótum unglingadeilda í fjöldamörg ár og þar keppa unglingadeildir sín á milli. Það var mikil dagskrá þetta kvöld, Eva Karlotta og Dívurnar komu og héldu uppi fjörinu. Kvöldið var síðan toppað þega Jói P og Króli mættu og trylltu lýðinn.
Frá þessu er greint á vef Landsbjargar.