Lögreglan á Norðurlandi vestra og sérsveit Ríkislögreglustjóra handtóku tvo karlmenn á þrítugsaldri í gær.
Lögreglan lagði hald á nokkuð magn fíkniefna og hnífa í tengslum við málið. Hinir handteknu voru vistaðir í fangageymslum.
Rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi vestra fer með rannsókn málsins.