Tindastóll og FHL (Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir) mættust á Sauðárkróksvelli í 1. umferð Íslandsmótsins í Bestu deild kvenna.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik. Á fyrstu 15 mínútum síðari hálfleiks þá fengu þrír leikmenn Tindastóls gult spjald og einnig Halldór Jón Sigurðsson þjálfari liðsins.
Fyrsta og eina mark leiksins kom á 71. mínútu þegar María Dögg Jóhannesdóttir skoraði fyrir Tindastól.
Tindastóll hélt út og sótti þrjú stig í fyrstu umferð og héldu markinu hreinu.
Tindastóll leikur við Þór/KA í næstu umferð. Leikurinn fer fram á Akureyri, mánudaginn 21. apríl í Boganum.