Tindastóll og Höttur mættust í blíðskaparveðri á Sauðárkróksvelli þann 7.júlí. Fyrir leikinn munaði tveim stigum á liðunum.
Ljóst var fyrir leik að markmaður Hattar, Ryan Allsop myndi ekki spila í dag, Ryan hefur verið stórgóður á milli stangana og aðeins fengið á sig sex mörk.
Leikurinn hófst fjörlega þar sem liðin skiptust á að sækja. Tindastólsmenn pressuðu vel og uppskáru mark á 8.mínutu þegar Ben Everson skoraði laglegt mark. Mikil barátta var í leiknum og sóknir báðu megin þó svo að Hattarmenn hafi ekki að skapa sér neitt afgerandi færi.
Heimamenn náðu síðan hægt og bítandi yfirhöndinni í leiknum og voru þeir að skapa stórhættu í hverri sókn. Það var síðan gegn gangi leiksins að Hattarmenn jafna úr hornspyrnu, en þar var að verki Stefán Þór Eyjólfsson á 30.mín. Strax í næstu sókn fá Tindastólsmenn hornspyrnu og þar hoppar Dominic Furness manna hæst og skallar hann í netið og kemur Tindastóli aftur yfir.
Eftir þetta auka Tindastólsmenn enn frekar í sóknarleikinn og hver sóknin af annari dynur á Héraðsbúum. Það er síðan á 37.mín að yngsti Furness bróðirinn, Theo skorar fínt mark og staðan orðin 3-1. Stólarnir halda áfram að yfirspila Hattarmenn á miðjunni og bæta við fjórða markinu á markamínutuni miklu. Þar var að verki Theodore Furness í annað sinn.
Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Hattar hefur væntanlega messað vel yfir sínum mönnum í hálfleik því allt annar bragur var á liðinu í byrjun seinni hálfleiks. Þeir náðu upp betra spili og höfðu undirtökin í leiknum. Það var svo á 60.mínutu að Stefán Þór Eyjólfsson skoraði sitt annað mark eftir klafs í teignum og Höttur eygðu þarna smá von. Stólarnir náðu að koma sér aftur betur inní leikinn og náðu markvissari sóknum sem skilaði sér í enn einu marki fyrir Stólana, Ben Everson bætti við sínu öðru marki í leiknum á 72.mínutu og staðan orðin 5-2.
Eftir þetta voru stólarnir komnir með öll tök á vellinum sóknir liðsins stórhættulegar og þeir hefðu hæglega getað bætt við 2-3 mörkum til viðbótar áður en varamaðurinn Max Toulute bætti við sjötta marki heimamanna á 89.mín. Í uppbótartíma voru Stólarnir klaufar að ná ekki að bæta við sjöunda marki sínu í leiknum.
Jan Erik Jessen dómari leiksins flautaði síðan leikinn af og sanngjarn 6-2 sigur heimamanna staðreynd. Eftir leikinn komu Stólarnir sér upp í fimmta sæti deildarinnar með 11.stig og markatöluna 19-17. Hattarmenn sem voru búnir að fá á sig sex mörk fyrir þennan leik eru stigi á eftir Stólunum í sjöunda sæti með markatöluna 10-12.