Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Tindastóll mættust í Mjólkurbikarnum í dag á Dalvíkurvelli.

53 áhorfendur voru mættir á völlinn til að hvetja liðin áfram. KF þurfti að gera skiptingu strax á 5. mínútu þegar Andri Már fór útaf fyrir Elís Beck, líklega vegna meiðsla.

Það var Tindastóll sem var sterkara liðið í fyrri hálfleik og skoraði þrjú mörk gegn engu. Fyrsta markið kom á 24. mínútu þegar Svend Emil skoraði fyrir Tindastól. Nokkrum mínútum síðar var staðan orðin 0-2.  Sigurður Snær skoraði svo þriðja mark Stólanna á 43. mínútu.

KF gerði tvær skiptingar snemma í síðari hálfleik og kom Sebastían Amor Óskarsson inná fyrir Alex Helga Óskarsson, en Sebastían Amor er aðeins 15 ára og var að leika sinn fyrsta bikarleik fyrir meistaraflokk KF. Þá kom reynsluboltinn Jóhannes Helgi Alfreðsson inná fyrir Jóhann Nóel Kristinsson, en Jóhannes er nýkominn til félagsins var einnig að spila sinn fyrsta bikarleik fyrir félagið.

Jóhannes Helgi var ekki lengi að finna markið hjá Tindastóli og minnkaði hann muninn á 51. mínútu og var staðan orðin 1-3.

Tindastóll fékk víti á 60. mínútu og skoraði Benjamín Gunnlaugsson og var staðan orðin 1-4.

KF svaraði nánast strax með marki þegar Marinó Snær Birgisson skoraði gott mark og minnkaði muninn í 2-4.

Jóhannes Helgi skoraði svo sitt annað mark fyrir KF á 74. mínútu og setti spennu í leikinn í stöðunni 3-4.

Tindastóll átti síðasta markið þegar David Bercedo skoraði á 86. mínútu. Lokatölur 3-5 í þessum fjöruga bikarleik.

Tindastóll mætir Dalvík/Reyni eða Völsungi í 2. umferð Mjólkurbikarins.