Í ljósi veikindaforfalla Pavels Ermolinskij þjálfara Tindastóls í körfuknattleik, hefur verið ákveðið að Svavar Atli Birgisson taki tímabundið við sem þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfuknattleik karla. Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir þessu nýja hlutverki við sig fram á vorið. Auk þjálfarastarfa sinna eiga þeir Svavar og Helgi einnig farsælan feril að baki í leikmannahópi Tindastóls.
Fjölmiðlafólk er beðið um að sýna Pavel tillitssemi í umfjöllun sinni um þessar breytingar og virða friðhelgi hans í bataferlinu. Körfuknattleiksdeild Tindastóls mun ekki tjá sig frekar um málið á næstunni.
Sauðárkróki 12. mars 2024
Fréttatilkynning.
F. h. körfuknattleiksdeildar Tindastóls
Dagur Baldvinsson, formaður