Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur fundað vegna fjölda nýrra Covid 19 smita í sveitarfélaginu síðustu daga.
Alls hafa 6 jákvæð sýni verið greind og á þriðja hundrað manns sett í sóttkví. Mikill fjöldi sýna hafa verið tekin í gær og í dag og ætla má að fjöldi þeirra sé um 400.
Í ljósi þessa telur aðgerðastjórn að ráðast þurfi í harðar aðgerðir svo unnt sé að takmarka frekari útbreiðslu sýkingarinnar strax og ná þar með tökum á ástandinu
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að fara í eftirfarandi aðgerðir:
  •  Sóttvarnarlæknir hefur ákveðið að þær tilslakanir á samkomutakmörkunum sem taka gildi mánudaginn 10. maí samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðuneytisins muni ekki taka gildi í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi fyrr en mánudaginn 17. maí.
  •  Öllu skólahaldi í Árskóla verður aflýst frá og með mánudeginum 10. maí a.m.k. til og með föstudeginum 14. maí.
  •  Leikskólinn Ársalir verður lokaður á sama tíma, nema fyrir skilgreinda forgangshópa, s.s. heilbrigðisstarfsmenn, lögreglumenn og sjúkraflutningsmenn næstu viku.
  •  Öll próf í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki verða heimapróf og skólinn lokaður nemendum.
  •  Heimavist Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra verður rýmd eins og kostur er.
  •  Sundlaugar sveitarfélagsins í Skagfirði verða lokaðar frá og með 10.maí og til og með sunnudeginum 16.maí.
  •  Íþróttaæfingar yngri flokka verði óheimilar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum 16. maí.
  •  Öllum íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins verður lokað nema fyrir æfingar meistaraflokka frá og með mánudeginum 10.maí til og með sunnudeginum 16.maí
  •  Íþróttakappleikir fullorðinna verða spilaðir án áhorfenda
  •  Líkamsræktarstöðvar verða lokaðar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum16. maí.
  •  Skíðasvæðinu í Tindastóli hefur verið lokað.
  •  Umhverfisdagar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem fara áttu fram 15. maí og plokk-áskorenda keppni milli fyrirtækja sem átti að hefjast núna á mánudag þ.e.a.s á morgun, er frestað um óákveðinn tíma
  •  Ráðhúsið á Sauðárkróki verður lokað frá og með mánudeginum 10. maí þar til annað verður ákveðið.
  •  Fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða sveitarfélagsins verður frestað um viku.
  •  Öllum menningarviðburðum á Sauðárkóki verður aflýst frá og með 10. maí, til og með sunnudeginum 16. maí. Þar með leiksýningum, bíósýningum og öðrum viðburðum þar sem fólk safnast saman.
  • Jafnframt þessum aðgerðum hafa stofnanir og fyrirtæki í Skagafirði ákveðið að bregðast við með eftirfarandi hætti.
  •  Afgreiðslutími Skagfirðingabúðar verður lengdur til að dreifa betur verslun og draga úr þeim fjölda sem inni er á hverjum tíma. Viðskiptavinir eru beðnir um að taka tillit til þess.
  •  Bílaverkstæði, og Vélaverkstæði KS og Tengill verða lokuð frá og með 10. maí, til og með föstudeginum 14. maí. Tengill mun þó starfa eftir neyðarskipulagi fyrirtækisins næstu viku.
  •  Byggingavöruverslun KS á Eyrinni verður lokuð en afgreiðsla verður í gegnum síma.
  •  Vörumiðlun mun loka afgreiðslu og jafnframt loka endurvinnslumóttöku en mun afgreiða vörur út úr húsi.
  •  Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mun loka afgreiðslu í þessa viku og starfsemi verður skert.
  •  Byggðastofnun mun loka afgreiðslunni þessa viku og starfsemi verður skert.
  •  1238 Batlte of Iceland og Grána bistro verður lokað þessa viku.
  •  GrandInn Bar verður lokaður þessa viku.
  •  Veitingastaðurinn Lemon verður með matsal lokaðan en selur mat út.
Athugið !!
  •  Aðgerðastjórn vill beina því til þeirra einstaklinga sem eru með einkenni að hafa samband við heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki eða panta tíma í gegnu um heilsuvera.is
  •  Aðgerðastjórn vill beina því til íbúa svæðisins að hafa samband í síma 444-0700 og eða í netfangið nordurland.vestra@logreglan.is ef þeim hafi verið gert að sæta sóttkví og um húsnæðisskort er að ræða