Halldór Jón Sigurðsson hefur ákveðið að láta af störfum sem þjálfari Tindastóls í meistaraflokks kvenna í knattspyrnu og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla að loknu yfirstandandi tímabili. Donni hefur verið aðalþjálfari kvennaliðs Tindastóls frá árinu 2021, auk þess að þjálfa karlaliðið ýmist sem aðal- eða aðstoðarþjálfari.
Donni náði frábærum árangri með kvennaliðið, besti árangur 7. sæti í Bestu deildinni.