Leikhópur Nemendafélags Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra setur upp sýninguna Stellu í orlofi eftir Guðrúnu Halldórsdóttur og sýnir í Bóknámshúsi FNV. Frumsýning verður mánudaginn 12. nóvember en stefnt er að því að sýna átta sinnum. Myndir af æfingu má sjá hér.
Sýningartímar verða sem hér segir:
- Frumsýning mánudaginn 12. nóvember kl. 20:00
- 2. sýning miðvikudaginn 14. nóvember kl. 20:00
- 3. sýning fimmtudaginn 15. nóvember kl. 20:00
- 4. sýning föstudaginn 16. nóvember kl. 20:00
- 5. sýning laugardaginn 17. nóvember kl. 17:00
- 6. sýning sunnudaginn 18. nóvember kl. 14:00
- 7. sýning sunnudaginn 18. nóvember kl. 20:00
- 8. sýning þriðjudaginn 20. nóvember kl. 20:00
Pöntunarsími er 455 8070, opinn á milli kl. 16 til 18 alla sýningardaga.