Í dag, laugardaginn 31. ágúst verður Sunddagurinn mikli haldinn í Dalvíkurbyggð. Í tilefni dagsins verður frítt í sund í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar og opið er í lauginni á milli kl. 9 – 17. Veittar verða viðurkenningar fyrir 200 m eða lengri sund milli kl. 10.00 – 14.00. Leiðbeiningar í sundi verða í lauginni milli 9.00 – 9.40. Tekið verður á móti skráningum á sundæfingar hjá Sundfélaginu Rán fyrir haustið 2019.
Æfingar verða hjá Sundfélaginu Rán í vetur alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 17:00.