Í vikunni var haldinn stofnfundur Vina Listasafnsins á Akureyri í Listasafninu, Ketilhúsi.  Stefnt er á að meðlimir geti komið með hugmyndir að fyrirlestrum, málþingum og annarri dagskrá auk þess að geta aðstoðað við sérstaka viðburði á vegum safnsins. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir var með stutta leiðsögn um sýningar á verkum Nínu Tryggvadóttur og Georgs Óskars og segir jafnframt frá fræðslustarfinu.  Rósa Kristín Júlíusdóttir sagði frá sambærilegri starfsemi Listasafna á Norðurlöndunum, Ítalíu og í Bandaríkjunum. Hlynur Hallsson, safnstjóri, sagði frá starfsemi Listasafnsins, fyrirhuguðum framkvæmdum og framtíðarmöguleikum.

Fram kom að aðild að Vinum Listasafnsins muni kosta 2.500 kr. árlega en 2.000 kr. fyrir 18 ára og yngri, 67 ára og eldri og námsmenn. Aðild felur jafnframt í sér:

– Árskort í Listasafnið á Akureyri
– Gjöf frá Listasafninu
– Frían aðgang að Hönnunarsafni Íslands og Gljúfrasteini, húsi Halldórs Laxness
– Afslátt af sýningarskrám og af vörum í fyrirhugaðri safnbúð
– Sérstakar leiðsagnir um sýningar og kynning á dagskrá og viðburðum á vegum safnsins.

Þau sem vilja gerast stofnfélagar í Vinum Listasafnsins geta haft samband við Þorbjörgu Ásgeirsdóttur, safnfulltrúa hjá bobba@listak.is.