Byggðarráð Skagafjarðar fagnar yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu mennta- og barnamálaráðuneytisins 10. júní sl. þar sem kemur fram að ríkisstjórnin hyggist halda áfram stefnu um eflingu iðn- og verknáms um land allt og að stefnt sé að því að framkvæmdir við viðbyggingar fjögurra verknámsskóla hefjist í vetur að loknu útboði, m.a. viðbyggingu við verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.

Byggðarráð Skagafjarðar hefur hvatt ráðherra til að stuðla að hröðum og öruggum framgangi framkvæmda og meira og nánara samráði við sveitarfélögin sem standa með ríkinu að uppbyggingu skólanna en mjög hefur skort upp á samtal og upplýsingaflæði undanfarna mánuði.

Full samstaða er meðal sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um þessa framkvæmd.