Slysavarnadeildin á Akureyri afhenti skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri snjóflóðavarnahlið um liðna helgi. Hliðið var sett upp við ofan við Stromplyftuna, efstu skíðalyftu svæðisins en þaðan halda skíðamenn gjarnan af stað ætli þeir að skíða utan hefðbundinna brauta fjallsins. Í hliðinu er sjálfvirkur búnaður sem lætur skíða- og göngufólk vita hvort snjóflóðaýlar þeirra séu í lagi eða rétt stilltir, ásamt því að veita almennar upplýsingar um snjóflóðavarnir.
Snjóflóðaýlir er mikilvægt öryggistæki sem sífellt fleira göngu, skíða og sleðafólk ber á sér. Ýlirinn sendir frá sér útvarpsbylgjur sem auðveldar leit að fólki í snjóflóðum. Við afhendinguna sagði Halldóra Bjarney Skúladóttir, formaður Slysavarnadeildarinnar á Akureyri að hliðið væri veigamikill þáttur í að auka vitund fólks um mikilvægi snjóflóðaýla meðal þeirra sem stunda fjallamennsku á vetrum. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli segir að hliðið og aukin notkun snjóðflóðaýla auki til muna öryggi þeirra sem vilja ganga ofan skíðasvæðisins og skíða utan troðinna brauta.
Hliðið í Hlíðarfjalli er annað sinnar tegundar sem Slysavarnafélagið Landsbjörg setur upp nú í vetur. Þriðja hliðið í Eyjafirði verður sett upp í Glerárdal sem er vinsælt útvistasvæði, bæði meðal göngu- og vélsleðafólks.