Skráning í Vinnuskóla Fjallabyggðar er hafin. Þeir sem eru að ljúka 8. – 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar geta skráð sig í Vinnuskóla Fjallabyggðar.
Skráning fer fram á Rafræn Fjallabyggð en einnig er hægt að fylla út meðfylgjandi umsóknareyðublað og senda á haukur@fjallabyggd.is

Til að geta skráð sig í Vinnuskólann þarf viðkomandi unglingur eða forráðamaður að hafa lögheimili í Fjallabyggð eða viðkomandi unglingur hafi stundað nám við Grunnskóla Fjallabyggðar í vetur.

Vinnufyrirkomulag skýrist þegar skráningu er lokið.
Hægt verður að tryggja þeim sem skrá sig fyrir 22. maí að lágmarki eftirfarandi vinnu:

8.bekk býðst vinna 1/2 daginn frá 8. júní – 31. júlí.
9.bekk býðst vinna 7 tíma á dag frá 8. júní – 31. júlí.
10.bekk býðst vinna 7 tíma á dag frá 8. júní – 7. ágúst.

Ekki verður hægt að tryggja lágmarksvinnu fyrir þá sem skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.

Tímafjöldinn fer eftir skráningu og því er jafnvel möguleiki á meiri vinnu.
Nánari upplýsingar verða birtar eftir 29. maí á heimasíðu Fjallabyggðar.

Texti: Fjallabyggð.is