Grunnskóli Fjallabyggðar hefur sent út nýtt skipulag fyrir næstu vikur vegna samkomubanns.
1. – 7. bekkur
- Kennt verður í 1. – 7. bekk alla daga frá kl 08:30-12:30
- Skólaakstur fellur niður og verða nemendur því í kennslu í sínum byggðarkjarna.
- Kennt verður í hópum og ákveðnir starfsmenn stýra allri vinnu með hverjum hópi fyrir sig. Ekki verður samgangur á milli hópa og reynt að afmarka hvern stað fyrir sig í skólabyggingunum. Sundkennsla og íþróttir verða ekki með hefðbundnu sniði, þeir starfsmenn sem munstraðir eru á hvern hóp sjá um allt uppbrot, frímínútur og hádegismat.
Tjarnarstígur:
1. og 2. bekkur verða saman
3. bekkur, 4. bekkur og 5. bekkur verða stakir hópar hver
6. og 7. bekkur verða saman.
Norðurgata:
1. bekkur, 2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur, 5. bekkur verða stakir hópar hver
6. og 7. bekkir verða saman
Hádegismatur verður ekki borinn fram í matsal heldur tekur hver hópur mat í sinni stofu. Ekki verður boðið upp á hafragraut á þessu tímabili. Mælst er til að nemendur hafi vatnsbrúsa með sér í skólatöskunni.
Nemendur verða ekki saman í frímínútum nema innan árgangs og þá á skilgreindum svæðum. Hver bekkur sér. Það verða því ekki venjulegar frímínútur heldur skipulögð útivera með kennara.
Frístund og Lengd viðvera fellur niður.
Ekki verður hægt að bjóða upp á frístund, né lengda viðveru á meðan þetta ástand varir en þeir foreldrar sem þegar hafa greitt fyrir lengda viðveru munu eiga það inni.
Nemendahópar ganga ekki allir inn á sama stað heldur munum við nýta neyðarútganga og allar að komur í húsið sem hægt er og í sumum tilfellum þurfa nemendur að koma á misjöfnum tíma að skólahúsinu og þá beint að þeim inngangi sem þeim er vísað á þar sem að starfsmaður þeirra hóps tekur á móti þeim. Mjög brýnt er að foreldrar virði þær tímasetningar og nemendur komi ekki að skólahúsinu fyrr en á þeirra tíma og alls ekki að þeir blandist í leik á skólalóð. Skór og útifatnaður verður aðgreindur eins og hægt er og skólahúsnæðið ekki opið eins og alla jafnan.
8. – 10. bekkur – fjarkennsla
Til þess að geta haldið úti skóla alla daga og tekið á móti nemendum þannig að rúmt sé um þá og starfsfólk hefur verið ákveðið að unglingastig, (8.-9. -10.) muni taka sitt nám í fjarkennslu. Fyrirkomulaginu verður þannig háttað að nemendur nota google classroom og verða að vera skráðir inn frá kl. 8:30 – 12:00 til að fá mætingu. Inn á google classroom – fjarkennsla 8.-10. bekkur, verða leiðbeiningar um innskráningu og verkefni.
Viðfangsefnin verða fjölbreytt, nemendur þurfa að hafa einhverjar kennslubækur en einnig verður námsefni á vef. Kennarar á unglingastigi verða til taks á þessu tíma inn á vefnum og í samskiptum við nemendur og einnig verður hægt að senda skilaboð í tölvupósti, messenger eða öðru sem hentar. Þetta fyrirkomulag er í þróun og gæti tekið breytingum. Umsjónarkennarar unglingastigs munu verða í sambandi við sína nemendur og foreldra. Nemendur í unglingadeild sem þegar hafa greitt fyrir mat sinn í mars munu eiga það inni.
Umgengni um skólahúsin takmörkuð
Takmörkuð umgengni verður um skólahúsin og biðjum við foreldra og aðra sem þurfa að ná á okkur að hafa samband með öðrum hætti.
Frekari upplýsingar um starfsfólk á hverri stöð, mætingu og innkomu í skólahúsið verða sendar með sérstökum pósti á viðkomandi bekki/hópa.
Við vonumst til að keyra þetta skipulag til að byrja með og höfum sett allt starfsfólk okkar undir en það má lítið út af bregða svo ekki verði hægt að standa við þetta og áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar með skömmum fyrirvara ef þörf er á.