Skíðasvæðið í Tindastóli verður opið frá kl 10 til 16 í dag. Enn er nægur snjór hér til að renna sér á svo það er um að gera drífa sig í fjallið og skemmta sér. Veður klukkan 8:45 hægviðri hiti+ 3c og skýjað.
Dagskráin í dag í Tindastóli:
- Kl. 10:00 – 16:00 Opið á skíðasvæðinu í Tindastóli – Músík í fjallinu.
- Troðin göngubraut fyrir styttra og lengra komna.
- kl.12:00 til 14:00 Paint ball skotið í mark, athugið verð: 1000kr hver 100 skot
- kl. 13:00 til 15:00 þrautabraut á brettum
Dagskráin á Páskadag í Tindastóli:
Páskadagur 8. apríl
- kl. 10:00 til 16:00 Opið á skíðasvæðinu.
- Troðin göngubraut bara fyrir alla.
- Mætum í eftirtektarverðum fötum
- kl. 12.00 Paint ball skotið í mark, verð 1000 kr hver 100 skot
- kl. 13.00 Þrautabraut fyrir 8 ára og yngri allir fá páskaegg að loknum tveim ferðum.
- kl. 13.00 Hæfnisbraut á brettum páskaegg í verðlaun, mikið hlegið.
- Kl. 14:00 Snjóþotu- og sleðarall – Músík í fjallinu.