Í dag, fimmtudaginn 17. apríl er opið frá kl. 10-16 á Skíðasvæði Tindastóls. Færið er gott. Mjög lítill snjór er utan brauta og suðurbrautin ekki í fullri breidd fyrir ofan fimmta staur. Skíðagestir hvattir til að fara varlega og taka tillit til annarra á svæðinu.
Opnunartími svæðisins yfir páskana:
- Fimmtudagur Skírdagur kl. 10-16
- Föstudagurinn langi kl. 10-16
- Laugardagur kl. 10-16 (páskaeggjaleit kl. 13)
- Sunnudagur páskadagur kl. 10-16
- Mánudagur annar í páskum kl. 10-16
Tónlist, leikjabraut, páskaeggjaleit og heimabakað í sjoppunni.