Breyting er á sjómannadagskrá laugardaginn 2. júní en þá verður skemmtisigling í boði Ramma hf með Sólbergi ÓF 1 þar sem farið verður frá Siglufirði kl. 11.30.  Auglýst dagskrá heldur síðan áfram á Ólafsfirði eftir siglilngu. Kappróður verður í Ólafsfirði kl. 13.00 og þar verður boðið uppá grillaðar pylsur og pepsi.

Ef allt gengur eftir verður þyrla LHG við tjörnina í Ólafsfirði kl 14.30.

Sjómannadagsráð og sjómannafélag Ólafsfjarðar.

 

 

 

Texti: aðsend fréttatilkynning.