Skagfirski kammerkórinn leitar að tenórum og bössum í kórinn. Spennandi verkefni framundan, meðal annars frumflutningur á nýju fallegu jólalagi sem er samið fyrir kórinn í tilefni af 25 ára afmæli hans.
Það er upplífgandi og andlega gefandi að syngja í kór og þessi kór er úrvals félagsskapur.
Áhugasamir geta haft samband við formann kórsins Kristján Valgarðsson í síma 8626711.