Í tilefni af því að björgunarbáturinn Aldan er nú komin í höfn í Skagafirði, býður Björgunarsveitin Skagfirðingasveit öllum velunnurum til athafnar í dag, laugardaginn 15. mars kl. 13:30-15:00. Báturinn verður sérstaklega afhentur Skagfirðingasveit af Fisk Seafood. Athöfnin fer fram að Borgarröst 1 á Sauðárkróki.
Björgunarbáturinn er mikilvægur áfangi fyrir öryggi sjófarenda í Skagafirði og vonast aðstandendur til að sjá sem flesta. Gestum býðst að skoða bátinn og fagna þessum áfanga með sveitinni.
Skagfirðingasveit fékk rausnarlega gjöf frá FISK Seafood og gátu þar með fjármagnað kaupin og nú er Aldan reiðubúin þegar neyðarkallið berst.
Kaka, kaffi og djús í boði fyrir gesti.