Eyfirski safnadagurinn verður haldinn sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl og að þessu sinni er yfirskrift dagsins bækur. Síldarminjasafnið á Siglufirði er opið á sumardaginn fyrsta kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis.  Í tilefni dagsins mun sr. Sigurður Ægisson kynna og lesa valda kafla úr væntanlegri bók sinni um Gústa guðsmann sem hann hefur unnið að í 15 ár. Kynningin fer fram í Bátahúsinu og hefst kl. 14:00 Að kynningu lokinni er gestum boðið að skoða bækur safnsins á efri hæð Bátahússins og þiggja létta veitingar.