Mikil stemning er fyrir Unglingalandsmóti UMFÍ sem fer fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Rúmlega 1.000 þátttakendur á aldrinum 11–18 ára voru skráðir til leiks þegar lokað var fyrir skráningu í greinar á miðnætti á sunnudagskvöld. Þátttakendur eru skráðir í 6.270 greinar, sem merkir að hver og einn þátttakandi tekur þátt í 5 til 6 greinum mótsins.
Á meðal einstakra greina sem góð skráning er í má nefna skák en þátttakendur í greininni hafa ekki verið jafn margir í 20 ár. Sömuleiðis er metskráning í hestaíþróttum og hefur þurft að færa upphaf greinarinnar laugardaginn 1. ágúst frá klukkan 11:00 til klukkan 10:00.
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad-kerfi, sem gengur út á sjálfvirka geturöðun. Það felur í sér að í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spilar hvert þeirra tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.
Smelltu hér: Keppnisgreinar