Rannsókn lögreglunnar á skotárás á Blönduósi miðar vel. Til rannsóknar er meðal annars hvernig andlát skotmannsins bar að en talið er að réttarkrufning muni leiða dánarorsök í ljós. Líðan þess er varð fyrir skoti og liggur á sjúkrahúsi er eftir atvikum og ljóst að áverkar hans eru alvarlegir.

Lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.