Nú er rafmagn komið á í flestum hverfum á Akureyri en á nokkrum stöðum er ennþá rafmagnslaust. Rafmagn var einnig komið inn á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Húsavík.  Þó nokkuð hefur rignt undanfarna klukkustund og er því mikið slabb og bleyta á sumum götum. Bílar geta fljótt misst grip ef að ekið er of greitt við svona aðstæður.