Sveinn Þ. Finster Úlfarsson hefur verið ráðinn umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Hann hóf störf 1. júní síðastliðinn.
Sveinn mun sinna umsjón með sorphirðu og þjónustu við íbúa, hafa umsjón með landbúnaðarmálum og samskipti við fjallskilastjórnir. Þá verður það einnig á hans könnu að sinna eftirliti með lausagöngu búfjár, skipulagi refa- og minkaveiða, umsýslu með hunda- og kattahaldi, viðhaldi girðinga og umsjón með landareignum Skagafjarðar.