Pílukastfélag Skagafjarðar hefur síðustu ár leigt húsnæði við Borgarteig á Sauðárkróki undir sína íþróttastarfsemi og staðið undir þeim kostnaði sjálft. Kostnaður vegna leigu vegur þungt í rekstri félagsins, sem telur rúmlega 60 skráða iðkendur.

Alls eru 24 iðkendur undir 18 ára aldri og af þeim eru 19 á grunnskólaaldri. Félagið heldur úti æfingum fyrir börn undir leiðsögn leiðbeinanda.

Félagið fékk formlega inngöngu í UMSS á síðasta ársþingi þess.

Pílukastfélag Skagafjarðar hefur óskað eftir styrk frá Skagafirði til niðurgreiðslu á leigu húsnæðis sem félagið hefur haft á leigu undanfarin ár.