Pétur Jóhann ætlar að taka léttan rúnt um landið í vetur og græta landan úr hlátri. Pétur verður í Félagsheimilinu Ljósheimum, fimmtudaginn 14. mars.
Í þetta skiptið verður Pétur með splunkunýtt efni þar sem hann fer um víðan völl og lætur gamminn geysa. Einnig má gera ráð fyrir að kötturinn, Gunnþór og fleiri snillingar líti við.
Ef þér finnst gaman að hlæja og skemmta þér konunglega þá er þetta málið.
Fyrri uppistandssýningar Péturs (Óheflaður & óhæfur) nutu gríðarlegra vinsælda og voru báðar mjög langlífar.
Forsala miða hefst mánudaginn 4. mars.
4.990 í forsölu // 6.500 við innganginn.