Í dag, laugardaginn 22. október kl. 13 opnar ART AK sem er gallerý og vinnustofur myndlistarmanna. Á opnuninni verður jafnframt opnuð myndlistarsýning þar sem eftirfarandi myndlistarfólk sýnir:  Aðalsteinn Þórsson, Ásta Bára Pétursdóttir, Brynhildur Kristinnsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Elísabet Ásgrímsdóttir, Guðbjörg Ringsted, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Heiðdís Hólm, Hrefna Harðardóttir, Hrönn Einarsdóttir, James Earl, Jónborg Sigurðardóttir, Jónína Björg Helgadóttir, Magnús Helgason, Ólafur Sveinsson og Thora Karlsdottir. ART AK verður jafnframt með viðburði, gjörninga, listamannaspjall fyrir hópa, örnámskeið, listaverkauppboð og Continue reading Opna gallerý og vinnustofur listamanna á Akureyri