Ólafur Þór Ólafsson hefur verið valinn úr hópi 16 umsækjenda til að taka við starfi sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastrandar. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 22. júlí næstkomandi.
Ólafur er stjórnmálafræðingur að mennt og með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og hefur t.d. verið forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar og verið sveitarstjóri bæði í Reykhólahreppi og Tálknafjarðarhreppi. Ólafur hefur einnig víðtæka reynslu af fræðslumálum en hann hefur verið grunnskólakennari, íþrótta- og tómstundafulltrúi og forstöðumaður Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum.
Hann tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi.