Oddur Benediktsson, 23 ára Hvergerðingur, hefur verið ráðinn yngriflokkaþjálfari Tindastóls á næsta tímabili. Oddur er ungur og upprennandi þjálfari sem mun verða í miklu starfi hjá körfuknattleiksdeildinni.
Oddur mun verða aðalþjálfari 8. 9. og 10. flokks drengja Tindastóls, sem allir taka þátt í Íslandsmótinu. Honum til aðstoðar verður Karl Jónsson. Auk þessa mun Oddur þjálfa míkróboltann og einhverja minniboltaflokka hjá Tindastóli.
Með ráðningu Odds verður hægt að nýta betur æfingatíma fyrr á daginn en áður hefur verið og mun það létta á æfingatímum seinni partinn.
Oddur hefur síðustu árin þjálfað á Suðurlandi, hjá Laugdælum, Hrunamönnum og Hamri og hefur smám saman verið að afla sér reynslu og þekkingar og verið duglegur við að sækja námskeið og aðra möguleika á menntun.
Oddur mun hefja störf þann 1. september n.k.