1. júní síðastliðinn tók gildi lengri afgreiðslutími sundlauganna í Skagafirði.
- Á Hofsósi er opið alla daga frá klukkan 9 á morgnana til kl. 21 á kvöldin.
- Sundlaugin á Sauðárkróki er opin frá klukkan 6.50 til klukkan 21 á kvöldin og frá klukkan 10 – 17 um helgar.
- Sundlaugin í Varmahlíð opnar alla daga klukkan 10.30 .
- Þar er opið virka daga til klukkan 21 og um helgar til klukkan 18.
- Þá er minnt á sundlaugarnar á Sólgörðum í Fljótum, á Hólum og Steinsstöðum sem allar eru opnar í sumar.