Golfklúbbur Skagafjarðar og sveitarfélagið Skagafjörður gera með sér samning um byggingu nýs golfskála á Sauðárkróki. Samningurinn hljóðar upp á fjárstuðning yfir 5 ára tímabil til byggingar nýs golfskála sem rís á svæði Golfklúbbs Skagafjarðar við Hlíðarendavöll á Sauðárkróki.