Nýr leikskóli við Birkimel 2 í Varmahlíð er kominn í notkun en framkvæmdir hófust í byrjun sumars 2024. Leikskólinn er 540 fermetrar að stærð með tengibyggingu og lóðin er um 5.800 fermetrar. Skólinn samanstendur af fjórum deildum sem heita: Könglaland, Kvistaland, Reyniland og Furuland.

Aðalverktakar verkefnisins voru annars vegar Uppsteypa ehf., sem sá um uppsteypu, allan ytri frágang hússins og lóðarframkvæmdir, og hins vegar Trésmiðjan Stígandi ehf. sem sá um allar innanhússframkvæmdir og uppsetningu innréttinga. Þá komu fjölmargir undirverktakar að verkinu.